Left Halda áfram að versla
Þín pöntun

Þú hefur engar vörur í körfunni þinni

Promotion
Read more

Face Halo Original – 3 í pakka

4.295 kr

Vörulýsing

Byltingarkenndur farðahreinsir.

Face Halo er byltingarkenndur farðahreinsir sem notar örtrefja til að hreinsa farða af aðeins með vatni. Face Halo er eiturefnalaus og margnota og kemur í stað 500 einnota farða/blautklúta.

Til að fjarlægja farða og/eða þrífa andlitið þarf ekki að nudda Face Halo fast. Örtreflarnir eru 100x minni en mannshár og fara því auðveldlega ofan í húðholur og djúphreinsar húðina. Þar sem engin efni koma til sögu þá hentar Face Halo allir húð – einnig vandamálahúð og ofnæmispésum.

Face Halo tekur af allan farða, meira að segja vatnsheldan – aðeins með vatni! En Face Halo má einnig nota með farðahreinsi fyrir þá sem kjósa það og getur því komið í stað einnota bómullarhnoðra. Einnig er hann æðislegur til að þrífa af maska.

3 saman í pakka svo að þú átt alltaf til hreinan Face Halo.

Þegar það er kominn tími til að endurnýja Face Halo þá tökum við á móti þeim hreinum og þurrum og endurvinnum.

Cruellty Free og Vegan – samþykkt af Peta.

 

Notkunarleiðbeiningar

Bleytið Face Halo í volgu eða köldu vatni, vindið aðeins og strjúkið farða mjúklega af húðinni. Til að ná augnförðun af, haldið Face Halo upp að auganu í nokkrar sekúndur til að leysa upp farðann og nuddið varlega – það þarf alls ekki mikinn núning til að ná öllu af.

Eftir notkun þrífið Face Halo með sápu í vaskinum til að ná sem mestu úr og látið þorna. Mikilvægt er að nota góða náttúrulega sápu og skola vel úr svo ekkert sitji eftir í klútinum. Face Halo má svo þvo í þvottavél og mælum við með að gera það 1x í viku að minnsta kosti. Ekki nota mýkingarefni.